Fréttir
Myndir
Gullkorn Gyssurar
Þjóðargersemi
Sigm Und-ur
Ýmislegt
Könnunin
Fréttabréf
Samband
Fréttir
Myndir
Smelltu
til að sjá valmynd
Fréttir
Myndir
Gullkorn Gyssurar
Þjóðargersemi
Sigm Und-ur
Ýmislegt
Könnunin
Fréttabréf
Samband
Loka valmynd
Gyssur
Þjóðargersemi
Sigm Und-ur
Ýmislegt
Könnunin
Fréttabréf
Samband
Sexfaldir tvífarar
Eða bara Páll Giuliani
Tweet
Segist bara jafn vanhæfur og venjulega
Kristján Þór Júlíusson, Samherjaráðherra, segist bæði finna fyrir trausti og vantrausti. Aðallega vantrausti en þó samt smá trausti. Kannski engu trausti, en allavega gríðarlega miklu vantrausti.
Miskunnarlausi
Samherjinn
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Stórskemmtilegt ævintýri fyrir kapítalista á öllum aldri
Ísland loksins komið á gráa listann!
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Næst þurfum við að komast á þann svarta!
Samtök
hatvinnulífsins
kynna sömu tillögur og venjulega
Samtök hatvinnulífsins gáfu nýlega út skýrslu sem nefnist „Menntun með þarfir fyrirtækja að leiðarljósi - Fólk má fokka sér.“
Í henni er að finna nokkrar framúrstefnulegar og verulega sæberpönkaðar tillögur, sem miða að því eins og titill skýrslunnar gefur til kynna, að koma enn og aftur á framfæri þeim sjónarmiðum samtakanna að fólk eigi ekki að mennta sig með sínar eigin langanir að leiðarljósi, heldur eigi það fyrst og fremst að hafa þarfir atvinnulífsins í huga.
Finnst skelfilegt að fyrirtæki axli
samfélagslega
ábyrgð
Wild-Boys bræðurnir Panama-Bjaddni og Simmi-Wintris hafa ekki verið sammála um margt undanfarin ár, annað en klassískan klæðaburð og næringargildi íslenskrar kjötsúpu. En það breyttist snögglega til hins betra nú í vikunni.
Svo hjartanlega sammála eru þeir að það má ekki á milli sjá hvor þeirra er meira sammála hinum.
En um hvað eru þeir svo sammála nú? Það þarf svo sem ekki að koma neinum á óvart...
Raggi hressi mættur á Tinder
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Ekkert óeðlilegt við endalausa spillingu
Már Guðmundsson, fyrrverandi Seðlabankaspillingur, segir ekkert óeðlilegt við gjörspillta og alltumlykjandi spillingu sína.
Hann segir að það sé alltaf spillt spillingarspilling alls staðar, hafi alltaf verið og verði alltaf. Sjálfur segist hann hafa mokað mikið upp úr spillingarflórnum í eigin vasa að hann hafi nánast örmagnast.
Gysið mun sigra
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Gleðilegan Júróvisíondag!
Mikilvægt samstarf þó enginn skilji neitt í neinu
Guðjón S. Brjánsson, aðalformaður Norðausturhluta Íslandsdeildar Norðvestnorræna norðurogniðurráðsins, segir eðlilegt að hann og aðrir ráðsmenn ráðsins skilji ekki neitt í neinu sem fram fer á ráðsfundum ráðsins.
Siðanefnd Alþingis
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
kann fáa góða siði
Úr dagbók lögreglu
Skömmu fyrir hálfátta í gærkvöld handtók lögreglan óvart mann sem var á gangi með hundinn sinn. Hann verður látinn dúsa í fangaklefa uns lögreglan getur skáldað upp ástæðu fyrir handtökunni.
Rétt fyrir átta var tilkynnt um hálfberan mann á hlaupum á Austurvelli. Kom í ljós að þar var á ferðinni Gunnar Bragi Sveinsson. Hann gistir fangageymslu þar til rennur af honum.
N1 -
Skítafyrirtæki
mánaðarins
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Sjá hér
Eldhúsdagsdansinn
Íslendingur í öðru sæti á
Ömurðarleikunum
Hinir daglegu Ömurðarleikar voru haldnir í gær sem aðra daga á Twitter. Keppnin er jafnan hörð, því að þó margt ömurlegt megi finna á Twitter þá þurfa þátttakendur í Ömurðarleikunum að uppfylla fjölda skilyrða til að eiga séns á sigri.
MOM
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Íhugar að hætta að bíða eftir nýju
stjórnarskránni
Sigríður Sóley Sigursteinsdóttir, eða Sigga-Sól eins og hún er jafnan kölluð, segist vera orðin svo þreytt á því að bíða eftir nýju stjórnarskránni að hún íhugi alvarlega að hætta því. Alfarið eða í það minnsta að hluta til.
Nú sé tímabært að snúa sér að einhverju öðru, eins og að bíða eftir fjórða orkupakkanum eða næsta sigri Stoke City.
Dularfulli
dulbúningurinn
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Virkar svona ótrúlega vel
Berþór aftur orðinn formaður
Berþór Ólason, formaður Íslandsdeildar INCEL samtakanna, þingmaður Miðflokksins og einn allra færasti bjórþambari landsins, var í gær kjörinn formaður Umhverfissóðanefndar Alþingis við mikinn fögnuð sumra viðstaddra.
Reykjavík í náinni framtíð
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Suðræn og seiðandi
Dónakarlarnir
snúa aftur
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Þó eftirspurn sé engin
Vikan á Instagram: „Ógissla findið að sj'a svona
vaksmindakalla“
Vikan á Instagram er fastur liður á GYS.is á mánudagsmorgnum þar sem við skoðum hvaða myndir slógu í gegn á Instagram síðustu daga.
Snjómokstur bannaður
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Í vetrarríkinu norðan heiða
Vill fækka litum í
regnbogafánanum...
Guðmundur Oddsson segist hafa miklar áhyggjur af því hversu marga liti megi enn finna í regnbogafánanum (sem innihélt 8 liti í upphaflegri gerð). Hann segir erfitt að muna sex mismunandi litanöfn í réttri röð, hvað þá öfugri.
Að mati Guðmundar er lífsnauðsynlegt að fækka litum í fánanum mikið. Best væri að fækka þeim í einn eða engan, en í allra mesta lagi megi hann innihalda tvo mismunandi liti.
Yfirlýsing Simma og félaga
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Kjöt eða grænmeti, það er spurningin
Líf Magneudóttir hefur fundið bráðsnjalla og ótrúlega einfalda lausn á loftslagvanda jarðar og hamfarahlýnun. Lausnin er margfalt einfaldari en nokkurn grunaði. Hún felst í því að skólabörn í Reykjavík hætti að borða kjöt, eða geri það allavega bara í frístundum.
Krísustjórnunarskóli
Simma
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Safnar
undirskriftum
í frístundum
Jón Kári Jónsson, formaður, ritari og gjaldkeri „Sjálfstæðismannafélagsins í Mávahlíð 34“, hefur undanfarna mánuði einbeitt sér að því þarfa verkefni að safna undirskriftum á meðal sjálfstæðismanna gegn þriðja orkupakkanum.
Jón Kári vill alls ekki gefa neitt uppi um hversu mörgum undirskriftum hann hefur safnað, en segir þó að þær séu örugglega fleiri en þrjár en samt mögulega færri en fjórar.
Moðhausar Miðflokksins
Smelltu til að skoða myndina í fullri stærð
Fréttir
Myndir
Þjóðargersemi
Sigm Und-ur
Ýmislegt
Könnunin
Fréttabréf
Fara efst á síðu